Til baka

Pollamót Þórs í knattspyrnu

Pollamót Þórs í knattspyrnu

Pollamót Þórs og Samskipa er árlegur íþróttaviðburður sem fer fram í byrjun júlí. Mótið hefst á föstudagsmorgni og lýkur með lokahófi á laugardagskvöldinu. Á þessu móti taka þátt kempur kvenna og karla í eldri kantinum sem rifja upp gamla takta í knattspyrnu. Mótið fer fram á Íþróttasvæði þórs við Hamar.

Um 50 karlalið voru skráð til leiks árið 2011 sem léku í þremur deildum, Pollar, Lávarðar og Öðlingar og um 10 kvennalið sem léku í tveimur deildum þ.e. Skvísudeild og Ljónynjur. Þátttakendur á mótinu hafa verið um 600.

Pollamót Samskipa og Þórs 2020 verður haldið dagana 1.- 4. júlí

Nánari upplýsingar í síma Þórs 461-2080 eða pollamot@thorsport.is.
Sjá einnig heimasíðu Þórs.

Hvenær
1. - 4. júlí
Hvar
Íþróttavöllur Þórs, Skarðshlíð, Akureyri
Nánari upplýsingar