Til baka

Ræktunarsmiðja

Ræktunarsmiðja

Gróðursetjum í samfélagsgarðinn okkar
Ræktunarsmiðja fyrir börn (fullorðnir velkomnir með).
Jóhann garðyrkjumaður kemur til okkar og fræðir okkur um garðyrkju og ræktun matvæla, við búum til sáningarennur og gróðursetjum í samfélagsgarðinn okkar.
Hægt verður að gróðursetja í lítil pappaform og fara með það heim.
Krítar í boði á útisvæði (ef veður leyfir).
Skráning óþörf.
Verið svo endilega dugleg að kíkja í samfélagsgarðinn okkar í sumar og ná ykkur í eitthvað grænt 😉
 
„Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.“
Hvenær
mánudagur, júní 16
Klukkan
09:00-11:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri