Til baka

Rafræn sögusmiðja með Villa

Rafræn sögusmiðja með Villa

Sköpun utan línulegrar dagskrár.

Þriðja rafræna listasmiðja Listasafnsins á Akureyri undir yfirskriftinni Sköpun utan línulegrar dagskrár er nú komin í loftið. Að þessu sinni hefur Vilhjálmur B. Bragason, leikari, leikskáld og tónlistarmaður umsjón með smiðjunni.

Verkefnið felst í því að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins á Akureyri. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fá að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu.

Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár.

HÉR má finna sögusmiðjuna með Villa.

Leiðbeiningar:

  • Fjölskyldan horfir saman á listsmiðjuna. Myndbandið er aðgengilegt HÉR.
  • Í sameiningu vinnur fjölskyldan sína eigin útgáfu af verkinu á þeim tíma sem hentar best.
  • Ekki er nauðsynlegt að koma í safnið, notast má við listaverk sem til eru heima eða finna verk á netinu.
  • Þegar listaverkið er tilbúið má koma með það í móttöku Listasafnsins á Akureyri. Opið er alla daga frá kl. 12 til 17.
  • Síðasti skiladagur er til og með 12. október 2022 og passa að þau séu merkt.
  • Laugardaginn 15. október 2022 opnar sýning á verkunum í safnfræðslurými safnsins.
  • Allir sem skila inn listaverki fá glaðning.
  • Sýningu lýkur 13. nóvember 2022 og þá fá listamenn verkin sín til baka.

Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiða Björk Vilhjálmsdóttur, fræðslufulltrúa, á netfangið heida@listak.is.


Verkefnið er styrkt af SSNE og Akureyrarbæ.

Hvenær
12. september - 12. október
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald