Til baka

Ratleikur Amtsbókasafnsins og FÉLAK - FRESTAÐ

Ratleikur Amtsbókasafnsins og FÉLAK - FRESTAÐ

Ratleikur á Amtsbókasafninu með "escape" ívafi fyrir nemendur í 8.-10 bekk.

 

Viðburðinum hefur verið frestað vegna Covid-19 takmarkana. Nánar auglýst síðar.

 

Miðvikudagskvöldið 14. apríl færa félagsmiðstöðvar Akureyrarbæjar sig yfir á Amtsbókasafnið. Þar verður ratleikur með “escape” ívafi fyrir nemendur í 8. – 10. bekk frá klukkan 20-22.

Við sögu koma týndir lyklar, læstar hirslur, sykurpúðar og útfjólublá ljós. Hafið þið það sem til þarf til að leysa allar þrautirnar?

ATH. Félagsmiðstöðvarnar verða lokaðar og fer öll starfsemi þeirra fram á bókasafninu þetta kvöld.


Verkefnið nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og er hluti af Barnamenningarhátíð.

Hvenær
miðvikudagur, apríl 14
Klukkan
20:00-22:00
Hvar
Brekkugata 17, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald