Til baka

Ritlistakvöld Ungskálda á Listasumri

Ritlistakvöld Ungskálda á Listasumri

Tilvalið fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist.

Fimmtudagskvöldið 23. júní kl. 20.00 verður kaffihúsakvöld Ungskálda haldið á kaffihúsinu LYST í Lystigarði Akureyrar í tilefni Listasumars. Kvöldið er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist. Frábært tækifæri til að hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Ljúffengur kaffibolli í boði fyrir gesti. Kynnir kvöldsins er Sesselía Ólafsdóttir, vandræðaskáld.

Fyrra ritlistakvöld Ungskálda á Listasumri. Seinna kvöldið er 30. júní. Sjá nánar HÉR.

__________________
Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Verkefnið hófst árið 2013 og það eina sinnar tegundar á landinu. Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku.
Til þess að styðja við áhugasama um að skila inn texta/textum er boðið upp á námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun, þar sem leiðbeinendur koma úr ólíkum áttum. Sem dæmi var síðustu ár leitað til Andra Snæs Magnasonar, Dóra DNA og Bryndísar Björgvinsdóttur. Einnig hefur ritlistakvöldið slegið í gegn en þar er gestum boðið upp á veitingar, upplestu og tónlistaratriði. Tilvalin vettvangur til að mynda tengsl í gegnum ritlistina.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Atvinnu-, markaðs- og menningarmálateymi Akureyrarbæjar, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu.


Verkefnið er hluti af Listasumri og styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

Hvenær
fimmtudagur, júní 23
Klukkan
20:00-21:30
Hvar
LYST, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald