Til baka

Ritlistasmiðja Ungskálda 2021

Ritlistasmiðja Ungskálda 2021

Spennandi ritlistasmiðja með Dóra DNA og Fríðu Ísberg
Laugardaginn 23. október frá kl. 10.00-15.30 verður ritlistasmiðja Ungskálda haldin í Menntaskólanum á Akureyri. Markmiðið er að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu.

Fyrri hluta dags leiðir rithöfundurinn Fríða Ísberg vinnuna en eftir hádegi verður unnið undir leiðsögn Dóra DNA. Þátttakendum verður boðið upp á létt hádegissnarl frá kl. 12.30-13.00.

Nánar um leiðbeinendur:
Halldór Laxness Halldórsson, f. 1985, betur þekktur sem Dóri DNA, er íslenskur leikari, rithöfundur og uppistandari. Halldór skrifaði og lék í leikritinu Þetta er grín án djóks, ásamt Sögu Garðarsdóttur sem sett var upp af Menningarfélagi Akureyrar árið 2015. Sama ár gaf hann út ljóðabókina Hugmyndir: Andvirði hundrað milljónir, en hún var tilnefnd til Menningarverðlauna DV árið 2016. Bókin hefur nú komið út í Þýskalandi. Haustið 2019 kom út fyrsta skáldsaga Dóra DNA, Kokkáll. Útgefandi er Bjartur. Bókin var ein af tíu söluhæstu skáldsögum landsins í jólabókaflóðinu. Undanfarin misseri hefur Dóri unnið að sinni næstu skáldsögu, leikritinu Þéttingu hryggðar, sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu nýverið, og ýmsum kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum.

Fríða Ísberg, f. 1992, lauk grunnprófi í heimspeki og meistaraprófi í ritlist við Háskóla Íslands. Hún vakti mikla athygli fyrir ljóðabækur sínar, Leðurjakkaveður og Slitförina, en sú síðarnefnda hlaut meðal annars Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Smásagnasafnið Kláði var tilnefnt til sömu verðlauna auk Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Fríða er ein af Svikaskáldum sem sent hafa frá sér þrjú ljóðverk og staðið fyrir margháttuðum viðburðum tengdum ljóðlist. Fyrsta skáldsaga hennar, Merking, er væntanleg um miðjan október.
 
Skráningu er lokið
 
Allar nánari upplýsingar og viðburðir á www.ungskald.is
________________________
 
Ungskáld er verkefni á Akureyri sem gengur út á að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára.

Verkefnið hófst árið 2013 og það eina sinnar tegundar á landinu. Staðið er fyrir ritlistakeppni þar sem veitt eru peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin. Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd. Þeir þurfa þó að vera á íslensku.

Til þess að styðja við áhugasama um að skila inn texta/textum er boðið upp á námskeið í skapandi skrifum og skapandi hugsun, þar sem leiðbeinendur koma úr ólíkum áttum. Sem dæmi var síðustu ár leitað til Andra Snæs Magnasonar, Kött GráPjé og Bryndísar Björgvinsdóttur.

Einnig hefur ritlistakvöldið slegið í gegn en þar er gestum boðið upp á veitingar, upplestu og tónlistaratriði. Tilvalin vettvangur til að mynda tengsl í gegnum ritlistina.

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu
 
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.

 

 

 

Hvenær
laugardagur, október 23
Klukkan
10:00-15:30
Hvar
Menntaskólinn á Akureyri, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir en skráning nauðsynleg