Við opnum sýningu um Rögnvald Rögnvaldsson kammerráð, lífskúnstner, hagyrðing og goðsögn í lifanda lífi í skáldabænum Akureyri.
Rögnvaldur var gæslumaður bæjarklósettanna undir kirkjutröppunum og hafði þar sinn eigin kontór sem hann nefndi Skáldalæk. Þar varð til einstakur samkomustaður skáldhneigðra menntaskólanema, litríkra bóhema og Akureyrarskáldanna sjálfra. Á Skáldalæk blómstraði mannlífið, húmorinn og skáldskapurinn.
Við opnun sýningarinnar mun Ragnar Ingi Aðalsteinsson, skáld og ritstjóri Stuðlabergs, segja sögu Rögnvaldar. Við sama tækifæri mun hann ásamt afkomendum Rögnvaldar afhenda merkilega gestabók frá Skáldalæk, þar sem fjölmargir gestir skildu eftir orð sín, vísur og skáldskap.
Eigum saman notalega stund á Skáld í upphafi aðventunnar!
Komdu og njóttu skemmtilegra sagna úr menningarlífi Akureyrar, hlýddu á fallegan skáldskap og finndu jafnvel hina fullkomnu jólagjöf.
📅 Laugardagur 5. desember 2026
🕑 Kl. 14:00
📍 Skáld Akureyri – Curio Collection by Hilton
Verið hjartanlega velkomin á Skáld! ✨