Til baka

Rökkurró í Lystigarðinum á Akureyrarvöku 2026

Rökkurró í Lystigarðinum á Akureyrarvöku 2026

Rómantísk stemning, dans og ljúfir tónar
Velkomin í rómantíska stemningu, dans og ljúfa tóna í upplýstum Lystigarði á Rökkurró.

Setningarhátíð Akureyrarvöku fer fram í Lystigarðinum á Akureyri föstudagskvöldið 28. ágúst og hefst dagskrá formlega með ávarpi bæjarstjóra kl. 21:00.

Gítarleikarinn Ivan Mendez gefur tóninn stuttu fyrir viðburð en Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar setur hátíðina og fer fram kynning á dagskrá Akureyrarvöku.

Að ávarpi bæjarstjóra loknu mun Páll frá Húsafelli spila á steinhörpu við undirleik Hilmars Arnar Agnarsonar áður en dansarar frá listdansskóla Steps Dancecenter sýna dansverkið FLOW. Eftir það taka flæðir djassinn úr höndum og hljóðfærum THE Tríó sem leiða gesti inn í nóttina.

Áætlað er að dagskrá ljúki um kl. 22:00.

Samhliða Rökkurró er opnun á sýningu Charlotte Søeborg, Út í garð, í Lystigarðinum þetta kvöld. Sýningin teygir sig frá Listasafninu á Akureyri og alla leið upp í garð. Boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna frá Charlotte sjálfri að dagskrá lokinni þar sem fágæt skordýr úr málmi leynast meðal trjáa og blóma garðsins. Opnun á þeim hluta sýningarinnar sem er í Listasafninu á Akureyri er laugardaginn 29. ágúst klukkan 15:00.

Kynnið ykkur fjölbreytta dagskrá Akureyrarvöku á akureyrarvaka.is
Hvenær
föstudagur, ágúst 28
Klukkan
20:40-22:00
Hvar
Lystigarðurinn á Akureyri - Skrúðhús
Verð
Enginn aðgangseyrir