Til baka

Rökkursöngur steinanna

Rökkursöngur steinanna

Páll frá Húsafelli leikur á steinhörpu á Rökkurró

Páll Guðmundsson frá Húsafelli hefur um áratugaskeið unnið bæði að myndlist og tónlist og hafa steinar úr umhverfi hans spilað stórt hlutverk í báðum listformum.

Steinharpan, sem Páll smíðaði sjálfur úr steinum úr gili í landi Húsafells þar sem hann býr, er einstakt hljóðfæri og ætlar hann nú að leika á hana fyrir Akureyringa, ásamt tónlistarmanninum og tónskáldinu Hilmari Erni Agnarssyni, sem spilar á píanó.

Daginn eftir, 29. ágúst, opnar í Listasafninu á Akureyri samsýningin Í snertingu, þar sem Páll sýnir verk sín, m.a. úr steini, ásamt Lene Zachariassen og færeyska listamanninum Maríu Tórgarð. Sýningin opnar kl. 15 og þar sem einnig verður tónlistaratriði sem enginn ætti að missa af!

Hvenær
föstudagur, ágúst 28
Klukkan
21:10-21:25
Hvar
Lystigarðurinn