Til baka

Rútuferð um Tröllaskaga: Sögu- og menningarferð

Rútuferð um Tröllaskaga: Sögu- og menningarferð

Ferðafélag Akureyrar

Rútuferð um Tröllaskaga: Sögu- og menningarferð

Brottför kl. 9 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Bragi Guðmundsson
Áhugaverð hringleið um Tröllaskaga undir samfelldri leiðsögn fararstjóra. Byrjað er á því að fara frá Akureyri um „Skottið“ til Siglufjarðar með viðkomu í Héðinsfirði. Á Siglufirði verður ein menningar­stofnun skoðuð og síðan liggur leiðin til Haganesvíkur sem á sér mikla sögu. Þar fær hópurinn sér göngu áður en haldið er til Hofsóss í hádegisverð. Frá Hofsósi er farið heim að Hólum og áð þar stutta stund. Þaðan er farinn hringur um Hegranes að minnisvarða um Jón Ósmann við vesturós Héraðsvatna til Sauðárkróks og síðan sem leið liggur til Akureyrar.
Verð: 18.000/20.000. Innifalið: Fararstjórn og rúta.

Hvenær
laugardagur, ágúst 12
Klukkan
09:00-18:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
18.000 kr. / 20.000 kr.