Til baka

S-I-L-I-C-A-0-3

S-I-L-I-C-A-0-3

Hulda Rós vinnur með ákveðin rannsóknarferli við sköpun verkanna.

Hulda Rós Guðnadóttir er fædd í Reykjavík 1973. Hún er menntuð í mannfræði (BA), gagnvirkri hönnun (MA) og myndlist (BA). Hulda býr og starfar í Berlín, hefur tekið þátt í yfir hundrað sýningum víða um heim og skapað sér sérstöðu á vettvangi samtímalistar. Fræðilegt og faglegt baklandið skín í gegn í verkum hennar, sem unnin eru á mörkum myndlistar, kvikmyndagerðar og samfélagsrýni.

Verk Huldu einkennast af heiðarleika, frumleika og sterkri persónulegri nálgun, en ekki síst af djúpri leit að tilgangi í hversdagsleikanum. Hún vinnur með ákveðin rannsóknarferli við sköpun verkanna, skoðar hvernig ólík svæði heimsins – Ísland þar á meðal – tengjast með jarðefnavinnslu og úrvinnslu hráefna. Slíkur mengandi og hagnaðardrifinn iðnaður getur haft tengsl við nýtingu tiltækra hreinna orkugjafa og það jafnvel á litlum stað á Norðausturlandi með tilheyrandi fórnarkostnaði. Eða hvað? Hulda tjáir áhorfendum með næmni sinni hvernig einstaklingar mótast af umhverfi sínu.

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir

Hvenær
16. maí - 6. september
Klukkan
11:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri