Sæskrímslabúrið
Opin vinnustofa fyrir börn og foreldra
Við bjóðum börnum og foreldrum þeirra í opna vinnustofu á Amtsbókasafninu á Akureyri 1. október kl 16:30-18:30.
Sæskrímslabúrið er gagnvirk upplifun fyrir börn. Þau eru hvött til að læra um íslensk sjávarskrímsli, tjá ótta sinn í gegnum list og leyfa honum síðan að fá útrás í leikrænni tjáningu.
Verkefnið er í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar og hefur notið stuðnings frá Barnamenningarsjóði.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.