Salsa & bachata danskvöld - Halloween þema!
Öll velkomin og ókeypis inn!
Þetta danskvöld verður með Halloween þema. Endilega mæta í búning þau sem vilja!
SALSA NORTH í samstarfi við VAMOS býður Akureyringum og nærsveitungum upp á danskvöld annan hvern fimmtudag í vetur.
Ókeypis inn og við hvetjum öll til að versla sér svalandi hressingu á barnum og styðja þannig við áframhaldandi dansviðburði á Vamos.
Við erum á annarri hæð á Vamos á Ráðhústorgi.
Hlökkum til að sjá ykkur á dansgólfinu!