Til baka

Saman gegn sóun - opinn fundur í Hofi

Saman gegn sóun - opinn fundur í Hofi

Fræðsla um úrgangsforvarnir og hringrásarhagkerfi og tækifæri til að hafa áhrif!

Umhverfisstofnun hefur verið falið að endurskoða stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun. Mikilvægur liður í þeirri vinnu er að fá innsýn í sjónarmið fólks, fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana um land allt.

Þann 9. apríl frá kl. 9-11:30 verður Umhverfisstofnun með opinn fund í Hofi Akureyri þar sem þátttakendur fá fræðslu um þau tækifæri sem liggja í bættri nýtingu og minni sóun og færi á að koma með tillögur að aðgerðum.

Frítt inn og léttar veitingar – fundinum verður einnig streymt.

Hér er viðburðurinn á Facebook
Skráning er nauðsynleg - sjá hér

HVAÐ ERU ÚRGANGSFORVARNIR?

  • Hvernig komum við í veg fyrir að verðmæti verði að rusli?
  • Hvernig nýtum við hluti, efni og auðlindir betur og lengur?
  • Hvernig getur fjármagn og regluverk hjálpað fyrirtækjum í átt að minni sóun?
  • Hvaða ávinning hefur þetta allt saman í för með sér fyrir fyrirtæki og fólk?

Þetta er kjarninn í stefnu stjórnvalda um úrgangsforvarnir - Saman gegn sóun.

FYRIR HVER?

  • Öll!
  • Starfsfólk fyrirtækja
  • Starfsfólk sveitarfélaga og stofnana
  • Nemendur
  • Almenning

AF HVERJU ÆTTI ÉG AÐ MÆTA?

  • Tækifæri til að hafa bein áhrif á stefnu stjórnvalda og koma sjónarmiðum þínum eða þíns vinnustaðar á framfæri
  • Fræðsla um hringrásarhagkerfið
  • Innblástur frá fyrirtækjum á svæðinu
  • Tækifæri til að spyrja sérfræðinga spurninga
  • Tækifæri til að ræða við fólk og fyrirtæki af svæðinu um þessi mál

DAGSKRÁ

  • Starfsfólk Saman gegn sóun hjá Umhverfisstofnun segir frá verkefninu: Hver er staðan á Íslandi? Hvaða tækifæri eru til að gera enn betur?
  • SSNE segir frá stöðu úrgangsforvarna og hringrásarhagkerfis á svæðinu
  • Tækifærin í deilihagkerfinu - Hrönn Björgvinsdóttir frá Amtsbókasafninu á Akureyri
  • Að halda samkeppnisforskoti á alþjóðamörkuðum í 40 ár á forsendum umhverfisins - Arnar Snorrason frá Sæplast
  • Samtal um aðgerðir
Hvenær
þriðjudagur, apríl 9
Klukkan
09:00-11:30
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Frítt inn