Á hælum albúmsins Onward undirbýr trommuleikarinn Scott McLemore útgáfu á fjórða albúminu sem hljóðritað var í Tékklandi. Eins og áður vefur kvartettinn og gítararnir tveir myndrænan hljóðheim fullan bjartsýni og hlýju. Kvartettinn mun leggja land undir fót í sumar og sækja firði landsins heim. Auk tónsmíða Scotts verða nokkrir áhrifavaldar eins og Paul Simon og Ornette Coleman hafðir með í dagskránni.
Scott McLemore - trommur
Hilmar Jensson - gítar
Andrés Þór - gítar
Nicolas Moreaux - bassi