Show Guilt X Leður X Sólför á Leyni barnum
MÁLMVEISLU á LEYNI. Þrjár local hljómsveitir, einir tónleikar!
Hljómsveitirnar SHOW GUILT, LEÐUR og SÓLFÖR halda sannkallaða MÁLMVEISLU á LEYNI þann 11. apríl, n.k. Trufluð stemning fyrir alla tónlistarunnendur!
Tónleikar hefjast kl. 21:00 - 3000 kr inn og greitt á staðnum.
- SHOW GUILT -
Show Guilt er fimm manna harðkjarnaverkefni frá Akureyri. Saman framkallar bandið hráa, þunga og aggressíva tónlist með harkalegum "breakdowns" og óþægilegum ósamhljómi. Engin viðlög heldur er aðeins hver kafli andstyggilegri en sá á undan. Verkefnið er eintóm skapandi útrás - hrein og klár kaþarsis. Show Guilt er eitt af sjö böndum sem mun keppa á Wacken Metal Battle Iceland 2026.
- LEÐUR -
Loðkennda, fuzz-rótgróna þungarokksveitin LEÐUR hefur verið starfandi síðan 2021 og flytur oft lítt þekkt lög eftir frægar hljómsveitir frá 70’s og 80’s rockinu á borð við Mötorhead, Black Sabbath og margar fleiri, auk þess að semja eigið efni. Frumsamið efni Leðurs er mjög innblásið af þessum sveitum og gefur hlustandanum bragð af öllu í einu. Þungir en melódískir riffar þeirra og mjúkar laglínur eru þekktar fyrir að ná fullkomnu jafnvægi milli yfirþyrmandi þunga og ógleymanlegrar laglínu.
- SÓLFÖR -
Akureyríska hljómsveitin Sólför stígur á stokk í fyrsta sinn! Sólför er nýtt band frá Akureyri sem skilgreinir tónlist sína sem „baksýnisspegils-rokk“. Með háværa gítara, dynjandi takt og grípandi laglínur að vopni, brúar sveitin bilið á milli gullaldar rokksins og nútímans. Fyrstu útgáfur þeirra, Clockwork Carousel og Resurrection, hafa þegar fest sig í sessi í loftbylgjum X-ins og boða nýja tíma.
Sólför er eitt af sjö böndum sem mun keppa á Wacken Metal Battle Iceland 2026.
Endurreisn rokksins er hafin!