Til baka

Sigurður Atli Sigurðsson - Sena

Sigurður Atli Sigurðsson - Sena

Orðið scenography þýðir bókstaflega að skrifa í rými og var upphaflega notað til að lýsa því þegar tvívíð teikning er yfirfærð í þrívíddarteikningu; senan er teiknuð upp. Verkin á sýningunni sýna viðmiðunarpunkta hugrænnar kortlagningar og hvernig manneskjan gerir tilraun til að skipuleggja umhverfi sitt bæði út frá hugmyndafræði og líkamlegum þörfum.

Sigurður Atli Sigurðsson (f. 1988) býr og starfar í Reykjavík. Verk hans takast á við byggingarefni samfélagsins, með því að skoða þau kerfi sem við búum okkur til og lifum eftir. Í verkum sínum vinnur Sigurður Atli með ýmiss konar prentefni, útgáfu og bókverk, auk þess að notast við grafíktækni til að vinna stórar myndaraðir. Sérþekking hans á þessu sviði hefur leitt hann til að halda sýningar, kenna og stýra sýningum víða um heim, nú nýlega á samtímalistasafninu í Tókýó og Listasafni Íslands.

Hvenær
27. janúar - 26. maí
Klukkan
12:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Aðgangseyrir inn á safnið - frítt fyrir 18 ára og yngri