Til baka

Sigurhæðir - opnun ársins 2025

Sigurhæðir - opnun ársins 2025

Fersk heildarsýning og ný og glæsileg verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns

Opnun á ferskri heildarsýningu í Menningarhúsi í Sigurhæðum ásamt mögnuðum og glæsilegum nýjum verkum Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns, sem hún vann sérstaklega fyrir Sigurhæðir.
Opnunardagskráin hefst kl 13 og endar á listamannsspjalli við Margréti kl 14-14.20. 

Logi Már Einarsson, ráðherra menningarmála, nýsköpunar og háskóla flytur stutt ávarp.

Frumflutt verður tónlist eftir Gunnar Haraldsson, meistaranema í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands, sem hann samdi í vor sérstaklega í samvinnu við Margréti fyrir Sigurhæðir.

Léttar veitingar - enginn aðgangseyrir - öll velkomin.

Hvenær
laugardagur, júní 7
Klukkan
13:00-14:30
Hvar
Flóra culture house Sigurhæðir - concept show - studios - shop, Sigurhæðir, Eyrarlandsvegur, Akureyri