Til baka

Singalong-kvöld með Geirmundi Valtýssyni

Singalong-kvöld með Geirmundi Valtýssyni

Syngdu með Geirmundi Valtýssyni
Geirmundur hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. Hann hefur komið fram á öllum helstu tónlistar- og útihátíðum landsins, og sungið í án efa flestum félagsheimilum og tónleikahúsum landsin. Árið 2008 hélt Geirmundur upp á 50 ára „bransaafmæli“ í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þar sem hann troðfyllti íþróttahúsið og mörghundruð manns mættu.
Geirmundur gaf út sína fyrstu breiðskífu ,,Í syngjandi sveiflu" árið 1989, og síðan eru plöturnar orðnar tólf. Það er óhætt að segja að flestar plötur Geirmundar hafi slegið í gegn, og hefur hann verið duglegur við að koma ungu fólki á framfæri, til dæmis með plötunni ,,Skagfirðingar syngja" árið 2015, þar sem fjöldi ungra Skagfirðinga, ásamt eldri, sungu lög hans.
Nú ætlar hann að mæta með harmonikkuna og hljómborðið ásamt Stefáni Gíslasyni píanóleikara og Jóa Færeyingi trommara að syngja sín allra þekktustu lög með aðstoð fólksins í salnum sem má gjarnan syngja með. Lög eins og Með vaxandi þrá, Ort í sandinn, Ég syng þennan söng, Lífsdansinn ofl. ofl. ofl.

Hvenær
laugardagur, júní 10
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4000