Til baka

Sjóðheit sveitarómantík og sykurhúðuð sjómennska

Sjóðheit sveitarómantík og sykurhúðuð sjómennska

Notaleg dægurlög með Tríói Akureyrar á Listasafninu á Akureyri

Tríó Akureyrar flytur m.a. lög um sjóðheita íslenska sveitarómantík, náttúru, framhjáhald, hesta, dans og sjómennsku!
Tríó Akureyrar skipa Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari, Valmar Vaeljaots allskonar leikari og Erla Dóra Vogler söngkona.
Gestir geta notið matar og/eða drykkja meðan þeir hlusta og dilla sér eftir þörfum við okkar yndislegu íslensku (og íslenskuðu) dægurlög, sem virka eins og malt og hangikjöt á sálina. Lögin sem Haukur Morthens, Villi Vill, Erla Þorsteins og allir hinir fluttu svo yndislega lifna á ný.

Tónleikarnir eru á Ketilkaffi á Listasafninu á Akureyri.

Tónleikarnir eru styrktir af Listasumri. 

Hvenær
fimmtudagur, júlí 16
Klukkan
16:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Ókeypis