Til baka

Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn

Deginum er fagnað víða á landinu og er sterk hefð fyrir honum við Eyjafjörðinn.

Sjómannadeginum er fagnað víða á landinu og er hefð fyrir því að fagna honum við Eyjafjörðin, má þar m.a. nefna Grímsey, Hrísey, Ólafsfjörð og Akureyri.
Á Akureyri er m.a. settur krans við minnismerki sjómanna, guðþjónustur helgaðar sjómönnum, auk fjölbreyttra viðburða. Víða er boðið upp á siglingu eða aðra skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Akureyri 2026

Laugardagur 6. júní
kl. 10.00 - 14.00 Sandgerðisbót
Verbúðir í Sandgerðisbót opnaðar, trillukarlar bjóða upp á sjávarsmakk.
Sjómannalög óma um alla bótina.
Grillaðar pylsur og Coke í boði Kjarnafæðis/Norðlenska, Myllunnar og Vífilfell.
Fiskasýning.
Bátabryggjurnar opnaðar og bátar til sýnis.
Netabætingar og tógsplæsingar kenndar.
Skipslíkön verða til sýnis.

Kl. 17.00: Fiskihöfn - Minningarsigling með Húna
Látinna sjómanna minnst.
„Það vaxa ekki blóm á leiðum sem liggja í votri gröf.“ Blóm lögð í sjóinn á vinnustað sjómanna.
Öll velkomin meðan skipspláss leyfir. 

Sunnudagur 7. júní - Sjómannadagurinn
kl. 08.00 Fánadagur
Bæjarbúar draga fána að hún
kl. 11.00 Sjómannadagsguðþjónusta
Messa í Akureyrarkirkju - sjómenn heiðraðir.
kl. 13.00 og kl. 14.15 Hópsigling smábáta og Húni II.
Húni siglir með bæjarbúa og hópsigling smábáta. Öll velkomin. 
kl. 15.30 Höefnerssvæðið
Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn afhjúpaður. 

Grímsey - Sjómannadagurinn 7. júní
Í Grímsey heldur Kvenfélagið Baugur kaffihlaðborð í félagsheimilinu Múla á sunnudeginum.

Hrísey - Sjómannadagurinn 7. júní
kl. 10.00 Sigling
kl. 11.11 Sjómannadagsmessa í Hríseyjarkirkju.
kl. 12.00 Ferjumenn grilla pylsur á svæðinu. Tæki björgunarsveitar og slökkviliðs til sýnis.
               Leikir og sprell á svæðinu og við smábátahöfnina.
kl. 15.00 Kaffisala kvenfélagsins í Íþróttamiðstöðinni.
kl. 16.00 Sigling fyrir börnin á björgunarbátnum Kidda.
Sjá nánar á heimasíðu Hríseyjar www.hrisey.is

Hvenær
6. - 7. júní
Hvar
Sandgerðisbót