Til baka

Sjón verður sögu ríkari

Sjón verður sögu ríkari

Sýningin í Ýmishúsinu samanstendur af ljósmyndum, myndlist, listmunum og mublum

Sjón verður sögu ríkari er listsýning sem samanstendur af ljósmyndum, myndlist, listmunum og mublum opnar miðvikudaginn 1. apríl og stendur til mánudags 6. apríl, annars í páskum.

Sýningin í Ýmishúsinu verður opin fyrsta daginn, miðvikudaginn 1. apríl, frá kl. 20:00 til 23:00 en hina dagana frá kl. 14:00 til 19:00.

Á sýningunni verða:

  • Ljósmyndir og litaprufur eftir Þengill Valdimarsson en hann hefur lengi verið ástríðufullur áhugaljósmyndari auk þess að búa til „litaprufur“ eins og hann kallar myndir sem hann hefur lengi gert með því að spreyja litum á striga
  • Verk Ingunnar Jensdóttur leikkonu sem fengist hefur við myndlist til fjölda ára. Um er að ræða vatnslita-og olíumyndir.
  • Kolbrún Ingólfsdóttir sýnir nytja- og listmuni úr endurunnu gleri. 
  • Á sýningunni verða einnig nokkrar stólar úr smiðju Valdakollar með hreindýraskinni
  • Skáhillur hannaðar af Gunnari heitnum Magnússyni húsgagnahönnuði og innanhússarkitekt frá Ólafsfirði, hinum sama og hannaði skákborðið sem Bobby Fischer og Boris Spassky tefldu við í heimsmeistaraeinvíginu í skák í Laugardalshöllinni í Reykjavík árið 1972, „Einvígi aldarinnar“ eins og það var kallað.
Hvenær
1. - 6. apríl
Klukkan
14:00-19:00
Hvar
Trésmiðjan Ýmir
Verð
Enginn aðgangseyrir