Til baka

Skáldastund í Davíðshúsi með Sigmundi Erni Rúnarssyni

Skáldastund í Davíðshúsi með Sigmundi Erni Rúnarssyni

Notaleg kvöldstund í Davíðshúsi

Kvöldstund í notalegu umhverfi Davíðshúss þar sem Sigmundur Ernir Rúnarsson segir frá tilurð og les úr nýjustu ljóðabók sinni Nokkur orð um notagildi lífsins og áður óbirt ljóð. Viðburðinn hefst klukkan 20:00.

„Nokkur orð um notagildi lífsin eru orð sem hafa vikt og maður vill helst njóta þeirra aftur og aftur.“ lifdununa.is

Í ljóðum sínum veltir hann fyrir sér lífinu, veginum sem við fetum í átt til grafar, sársaukanum sem mætir okkur á leiðinni og hinu sem veitir fró, samskipti okkar við aðra og þroskinn sem flestir öðlast með aldrinum. „Sigmundi er einstaklega lagið að snerta við tilfinningum fólks, hreyfa við lesandanum. Sum ljóðin eru hugljúf, full af gleði meðan önnur lýsa djúpri sorg, erfiðum sársauka sem aldrei er hægt að yfirvinna til fulls.“
lifdununa.is

Sigmundur Ernir hefur sent frá sér vel á þriðja tug bóka, allt frá því hann var menntaskólaskáld á Akureyri á árum áður, en bækur hans geyma jafnt ljóð og prósa, sögur og minningar og æviþætti af öllu tagi, en fyrir bækur sínar, sem margar hafa notið metsölu hefur hann fengið margvíslegar viðurkenningar.

Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6
Hvenær: föstudaginn 20. febrúar
Klukkan: 20:00
Aðgangseyrir 500 kr.
Ókeypis fyrir handhafa ársmiða safnanna

Hvenær
föstudagur, febrúar 20
Klukkan
20:00-21:00
Hvar
Davíðshús
Verð
500 kr. - Ókeypis fyrir handhafa árskorts