Til baka

Skálmöld

Skálmöld

SKÁLMÖLD VAKNAR ÚR DVALA
 
SKÁLMÖLD VAKNAR ÚR DVALA Þungarokkssveitin Skálmöld hefur legið í dvala frá árinu 2019 og voru síðustu tónleikarnir hljóðritaðir og gefnir út, Skálmöld 10 Year Anniversary - Live In Reykjavík. Ólíkt öðru listafólki á svipuðum tíma var pásan skipulögð en óhjákvæmilega fylgdu margir í kjölfarið þegar heimsfaraldurinn skall á. En nú vaknar risinn á ný. Skálmaldarmenn hafa safnað orku fyrir næsta kafla og halda á sex vikna Evróputúr fyrir jólin. Áður en að því kemur hyggjast sexmenningarnir spila hérlendis og er dagskráin sem hér segir: 22. júlí: Græni hatturinn, Akureyri 23. júlí: Bræðslan, Borgarfjörður Eystri 28. okt: Eldborg, Reykjavík Miðarnir seljast hratt og nú þegar uppselt á einhverja viðburði. Því er óhætt að mæla með því að fólk tryggi sér aðgang ekki seinna en strax.
 
 
Hvenær
föstudagur, júlí 22
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900