Erfiðleikastig: 2-3 skór
Brottför kl. 9 frá FFA, Strandgötu 23.
Sameinast í bíla ef vill. Þeir sem þiggja far taka þátt í ferðakostnaði, gerum ráð fyrir 2500 kr. á mann með göngunum.
Fararstjórn: Þóroddur F. Þóroddsson
Það tekur u.þ.b. 30 mín að keyra frá FFA að Fosshóli þar sem skilinn verður eftir a.m.k. einn bíll og svo ekið að línuvegi sunnan við Kálfborgarána og þar hefst gangan.
Gönguleiðin er um 15 km. Hækkun 150-200 m. Gert er ráð fyrir um 2-3 klst. göngu að Heiðarseli, 4 km og 150 m hækkun og síðan gengið um sléttar mýrar og ása norðurundir þjóðveg (8 km) og þaðan undan halla sunnan Rauðár niður að Fosshóli. Stefnt er að hámarki 6-7 klst. skíðagöngu.
Stoppað verður nokkrum sinnum á leiðinni en annars gengið greiðlega eins og færi býður upp á. Þetta er auðfarin leið í góðu færi en ef fyrirsjánlegt verður að of langan tíma taki að ná að Fosshóli er hugsanlegt að fara fyrr niður á þjóðveg og eins ef skíðafæri er mjög gott er hægt að bæta við fleiri km.
Skynsamlegt er að hafa fljótandi rennslisáburð í pokanum og svo nesti og skjólfatnað, minnt á eitthvað heitt í brúsa og setmottu.
Lámarksfjöldi eru 8 manns svo ferðin verði farin.
Verð: 2.700 / 4.400 kr.
Greitt við brottför
Skráning á ffa.is