Til baka

Skítamórall

Skítamórall

Tónleikar

Það var fyrir réttum 30 árum sem fjórir 13 ára drengir á Selfossi stofnuðu unglingahljómsveitina Skítamóral. Rétt fyrir aldamótin síðustu komu þeir svo eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf. Fullir orku og spilagleði slógu þeir rækilega í gegn, þeyttust um landið þvert og endilangt og sendu frá sér hvern smellinn á fætur öðrum.

Strákarnir hafa engu gleymt og nú ætla þeir að líta um öxl og halda tónleika á Græna hattinum, kvöldstund sem enginn sannur Skímó aðdáandi má láta fram hjá sér fara.

Hljómsveitin mun leika öll sín bestu og vinsælustu lög og lofar stuði og stemningu eins og
þeim einum er lagið.

Hljómsveitina skipa:
Gunnar Ólason, söngur/gítar
Einar Ágúst Víðisson, söngur/gítar/ásláttur
Jóhann Bachmann, trommur
Herbert Viðarsson, bassi
Gunnar Þór Jónsson, gítar
Arngrímur Fannar Haraldsson, gítar.

Hvenær
laugardagur, júní 27
Klukkan
21:00
Nánari upplýsingar