Til baka

Sköpun bernskunnar 2026

Sköpun bernskunnar 2026

Skapandi samtal barna og listamanns

Sýning undir heitinu Sköpun bernskunnar hefur verið sett upp árlega í Listasafninu á Akureyri frá 2015. Markmiðið með sýningunni er að efla safnfræðslu og gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn ásamt Minjasafninu á Akureyri / Leikfangahúsinu.

Í ár var myndlistarkonunni Sunnu Svavarsdóttir boðin þátttaka í verkefninu. Í verkum sínum opnar Sunna á samtal um hvernig við röltum í gegnum veröldina með skynfærum okkar. Hún beinir athyglinni að upplifun á áveðnum augnablikum sem er að mestu skynjun snertingar og lyktar. Forvitnin við að finna leiðir til að lengja þessi augnablik er oftast upphafspunktur verka hennar.

Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Tröllaborgir, grunnskólarnir Brekkuskóli, Glerárskóli, Naustaskóli og Oddeyrarskóli. Í vetur komu skólabörnin í Listasafnið og unnu verk sín fyrir sýninguna undir handleiðslu listamannsins. Þar fengu þau tækifæri til að kynnast Sunnu og skapa eigin verk, innblásin af verkum hennar.

Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.

Hvenær
28. febrúar - 26. apríl
Klukkan
15:00-17:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Sjá upplýsingar á heimasíðu.