Á 16. öld var byrjað að prenta bækur á Íslandi. Þar með var nýr textamiðill kominn til sögunnar en öldum saman höfðu Íslendingar skrifað upp handritaðan texta á skinn. Þrátt fyrir tilkomu hins nýja miðils lifði handritið góðu lífi fram yfir aldamótin 1900.
Í fyrra kom út bókin Skrifarar sem skreyttu handrit sín. Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda eftir Kjartan Atla Ísleifsson sagnfræðing. Bókin er afrakstur þeirra rannsókna sem Kjartan hefur unnið að undanfarin ár á skreytingum og myndrænu efni í íslenskum pappírshandritum frá lokum 17. aldar til upphafs þeirrar 20.
Í erindinu mun Kjartan segja frá rannsóknum sínum og leit sinni að skreyttum handritum í handritasafni Landsbókasafns. Greint verður frá helstu flokkum skreytinga sem birtast í handritum síðari alda og ræddar verða mögulegar fyrirmyndir þeirra. Þar að auki verður til umfjöllunar einn listaskrifari, Geir Vigfússon (1813–1880) sem bjó lengst af í fjörunni á Akureyri. Geir var tómthúsmaður en í frítíma sínum sinnti hann ýmsum fræðimannsstörfum og liggur eftir hann töluvert af fagurlega skeyttum handritum.
Bókin Skrifar sem skreyttu handrit sín var tilnefnt til verðlauna Hagþenkis árið 2026, fagfélags höfunda fræðirita og kennslugagna og skylds efnis.
Viðburðaröðin Fortíðin í nýju ljósi! er samstarfsverkefni Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri. Hótel Akureyri styrkir viðburðaröðina.
Hvar: Aðalstræti 58
Hvenær: fimmtudaginn 19. Mars
Klukkan: 17:00-17:50
Aðgangur ókeypis