Smjör eða smjörvi? Það er stóra spurningin. Ég velti því oft fyrir mér hvort sá sem ég sé út í búð sé að fara kaupa smjör eða smjörva. Stundum elti ég þau, til að sjá hvort ég hafi haft rétt fyrir mér. Stundum ýminda ég mér bara hvernig það væri að kaupa bæði smjör og smjörva á sama tíma og búa í heimi þar sem ég væri að drukkna í alls kyns smjöri. Silfursmjöri, gullsmjöri, grænusmjöri, bláu smjöri, hinu græna smjörinu, vegan smjöri. Hvað myndi ég gera við allt þetta smjör? Ekki myndi ég borða það. Þá yrði mér bara illt í maganum.
Eftir Þorbjörgu Þóroddsdóttur
Leiklesið af Sindra Snæ Jónssyni og Hringi Kjartanssyni.
---------------
Krummafótur er grasrótarsviðslistahátíð, haldinn í fyrsta sinn 10.-12. júlí 2026. Frítt er inn á alla viðburði. Við hlökkum til að sjá ykkur!