Til baka

Snert hörpu mína

Snert hörpu mína

Hörputónleikar með nýjum akureyrskum verkum eftir akureyrsk tónskáld

Tónlistar- og myndlistarkonan og hörpuleikarinn Mahaut Ingiríður Matharel, Sumarlistamaður Akureyrarbæjar 2026, heldur hörputónleika 22. ágúst næstkomandi með frumsömdum verkum eftir akureyrsk tónskáld. Sjálf hefur hún samið þrjú verk fyrir tónleikana og fengið tónverk frá fleiri Akureyrskum tónskáldum, Þorvaldi Erni Davíðssyni, Jóhanni Val Björnssyni, Guðjóni Elí Ingvarssyni, Michael Jon Clarke og Ísólfi Raymond Matharel.

Ferlið byrjaði í vor þegar Mahaut byrjaði að semja og óska eftir verkum, en eftir það hélt hún kynningar fyrir tónskáldunum um hvernig væri gott að semja tónlist fyrir hörpu. Sum verk eru einleiksverk en önnur kammer, og kammerhópurinn samanstendur af ungu upprennandi tónlistarfólki.

 

„Markmiðið með þessum tónleikum er að gefa tónskáldum tækifæri til að semja fyrir sjaldheyrð hljóðfæri, einkum hér á Norðurlandi. Þar sem harpan er aðallega notuð í hljómsveitum og er mjög sérkennilegt hljóðfæri er það oft sem tónskáld vita ekki hvernig eigi að skrifa fyrir hana eða eru feimin við það og til þess voru kynningarnar þar sem var farið yfir bæði tækniatriði, skemmtilega effekta sem hægt er að nota og hvað skal varast þegar skrifað er fyrir hörpu. Einnig er þetta hugsað til þess að hjálpa hljóðfæraleikurum að komast á framfæri fyrir utan veggi tónlistarskólanna í sjálfstæðu verkefni.

Tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju 22. ágúst klukkan 18:00.

Hvenær
laugardagur, ágúst 22
Klukkan
18:00-19:00
Hvar
Eyrarlandsvegur 1, Akureyri, Iceland
Verð
ókeypis!