Til baka

Söguferð 3 - raðganga. Ófeigsstaðir í Kaldakinn - Helgastaðir í Reykjadal

Söguferð 3 - raðganga. Ófeigsstaðir í Kaldakinn - Helgastaðir í Reykjadal

Söguferð 3 - raðganga, í fótspor Helgu Sörensdóttur. Hægt að taka stakar göngur.

21. ágúst, sunnudagur. Raðganga 3: Ófeigsstaðir í Kaldakinn – Helgastaðir í Reykjadal 

Brottför kl. 09.00 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23, Akureyri.
Fararstjórn: Erla Sigurðardóttir og Ingvar Teitsson
Ekið á einkabílum að Ófeigsstöðum í Kaldakinn. Þaðan göngum við austur yfir brúna á Skjálfandafljóti og svo suður austurbakka Fljótsins að bænum Vaði. Sunnan Vaðs göngum við upp skógi vaxna brekku að tóftunum af Fossseli en þar átti Helga Sörensdóttir heima í 11 ár. Frá Fossseli fylgjum við götuslóðum suðaustur yfir Fljótsheiði. Á þeirri leið er fallegt útsýni yfir sveitirnar austan og vestan Fljótsheiðar. Við komum austur af heiðinni rétt norðan Helgastaða í Reykjadal. Hér gekk Helga til spurninga og ganga dagsins endar við heimreiðina í Helgastaði.
Vegalengd: 12,5 km, lóðrétt hækkun 170 m.
Ath: Selflytja þarf bíla milli Ófeigsstaða og Helgastaða.
Áætlaður göngutími 4 klst.
Verð: 2.000/3.500 kr.

Þeim sem hentar betur að mæta beint á upphafsstað göngunnar (að Ófeigsstöðum, lagt af stað þaðan kl. 10:00) er bent á að hafa samband við skrifstofu FFA varðandi greiðslu. Skrifstofan er opin virka daga kl. 14:00-17:00.
Netfang: ffa@ffa.is / sími: 462 2720

Hvenær
sunnudagur, ágúst 21
Klukkan
09:00-18:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
2.000 kr./3.500 kr.