Til baka

Sögustundir alla fimmtudaga klukkan 16:30

Sögustundir alla fimmtudaga klukkan 16:30

Sögustund og föndur
Hvaðan kemur maturinn okkar?
 
Sögustund og föndur fimmtudaginn 30. apríl klukkan 16:30.
Lesum bókina Hvað borða Líló og Stich og spöllum um það hvaðan maturinn okkar kemur.
 
Skemmtilegt föndur á eftir.
 
Vika 17 er alþjóðleg vika heimsmarkmiðanna á bókasöfnum. Í tilefni vikunnar verða ýmsir viðburðir tengdir heimsmarkmiðunum á dagskrá bókasafna vítt og breytt um landið.
Verkefnið á uppruna sinn að rekja til Danmerkur en í dag taka hátt í 200 bókasöfn frá 10 mismunandi löndum þátt. Markmiðið er að vekja athygli á heimsmarkmiðunum 17 með fjölbreyttum viðburðum og sýna að við getum öll lagt okkar af mörkum.
Þema vikunnar í ár beinist að markmiði 2 Ekkert hungur og er því sérstök áhersla lögð á verkefni sem tengjast matvælum.
 
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.
Hvenær
fimmtudagur, apríl 30
Klukkan
16:30-18:00
Hvar
Amtsbókasafnið á Akureyri