Sögustundir alla fimmtudaga klukkan 16:30
Sögustund á ensku og föndur
Við fáum góðan gest, hana Christina til okkar sem ætlar að lesa fyrir okkur á ensku og vera með skemmtilegt föndur á eftir!
Endilega fjölmennum og höfum gaman saman

Öll velkomin.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.