Sögustundir alla fimmtudaga klukkan 16:30
Sögustund og verkefnavinna
Eru álfar kannski tröll – og hvað gerum við í því? Já, og hver er Karlinn í tunglinu?
Verið hjartanlega velkomin á notalega lesstund hér á bókasafninu með Evu Þengilsdóttur. Eva les úr tveimur nýútkomnum bókum sínum, Auðnar – engum líkur og Ljós heimsins sem komu út nú í haust hjá Sögum útgáfu. Hún býður svo upp á skemmtileg verkefni eftir lesturinn.
Ljós heimsins fjallar um strák sem á erfitt með að sofna á kvöldin. Hann býr hjá ömmu sinni og afa sem gera allt til að hjálpa honum að sofna. Þau syngja og lesa fyrir hann öll kvöld, kyssa hann og knúsa – en hann geispar ekki einu sinni. Þau sofna á endanum dauðuppgefin en Kalli vakir áfram – og eitt kvöldið tekur hann eftir því að tunglið hangir á himninum dauflegt og rammskakkt. Hann er hjálpsamur og auðvitað reynir hann að gera eitthvað í því. Gerði Steinarsdóttir teiknari myndskreytti bókina.
Álfar og tröll eiga sviðið í barnabókinni Auðnar – engum líkur. Álfana hafði dreymt um að eignast barn í ár og aldir. Þeir höfðu skrifað það í skýin, hvíslað því að fjöllunum og hver að öðrum. Þeim varð loks að ósk sinni þegar Auðnar litli birtist undurfallegur og engum líkur. Í bókinni er unnið á skapandi hátt með íslenskan menningararf og er frásögnin í máli og myndum bæði lifandi og skemmtileg. Við erum alls konar og öll viljum við að finna að við tilheyrum. Sagan á erindi til barna og fullorðinna og opnar á mikilvægt samtal.
Eva hefur áður sent frá sér barnabækurnar Nálu riddarasögu og Gerðu eins og ég, Hvati og dýrin. Hún hefur einnig skrifað barnaefni fyrir sjónvarp og leikskóla.
Komið og njótið stundarinnar með okkur. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.