Til baka

Sólstafir

Sólstafir

Sólstafir á Akureyri.

FYRSTU TÓNLEIKARNIR Í TVÖ ÁR
Hljómsveitin Sólstafir spilar á Græna Hattinum þann 17. júlí.
Eftir langt og strangt tónleikahlé í heimsfaraldri eru Sólstafir spenntir fyrir því að stíga á svið á Græna Hattinum. Þar sem þeir hafa spilað á ólíkum tónleikastöðum út um allan heim geta þeir staðfest að hljómburðurinn og stemningin á Græna Hattinum er á heimsmælikvarða.
Í nóvember 2020 kom 7. plata Sólstafa út, Endless Twilight of Codependent Love, en sökum heimsfaraldursins gat sveitin ekki fylgt henni eftir með tónleikahaldi. Þetta eru því fyrstu tónleikar sveitarinnar í tæp tvö ár.
Síðustu plötur Sólstafa, Berdreyminn, Ótta, Svartir Sandar og Köld, hafa fengið mjög góðar móttökur undanfarin ár og skipað sveitinni sess sem ein framsæknasta rokksveit senunnar.

Hvenær
laugardagur, júlí 17
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4900