Til baka

Sólstöðuhátíð í Grímsey 2024

Sólstöðuhátíð í Grímsey 2024

Bæjarhátíð Grímseyinga á lengsta degi ársins og er gestum og gangandi boðið að taka þátt í hátíðarhöldunum með heimafólki.

Grímseyingar halda bæjarhátíð í tilefni af sumarsólstöðunum og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í hátíðarhöldunum með sér. Gestum er boðið að taka þátt í allskyns uppákomum og afþreyingu og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi.

Dagskrá hátíðarinnar 2024
*birt með fyrirvara um breytingar

Afgreiðslutímar og þjónusta:
Verslun: Alla daga milli 15.00-16.00
Veitingastaðurinn Krían: Föstudag 12.00-23.00, Laugardag 12.00-21.00, Sunnudag 12.00-21.00
Sundlaugin: Föstudag 18.00-19.30, Laugardag 13.00-16.00, Sunnudag 13.00-15.00
Gallleríið: Opið á meðan ferjan stoppar

Sæfari fer frá Dalvík til Grímseyjar kl. 09.00 mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga, föstudaga og sunnudaga (og tilbaka sömu daga frá Grímsey).
Hægt er að bóka miða í ferjuna á vefsíðu Vegagerðarinnar
Flug milli Akureyrar og Grímseyjar, nánari upplýsingar og bókanir á vefsíðu Norlandair

Hvenær
21. - 23. júní
Hvar
Grímsey
Verð
Enginn aðgangseyrir
Nánari upplýsingar

Nánar um Grímsey HÉR