Tvennir tónleikar kl. 13 & 14.30 með nemendum Tónlistaskólans & leikskólabörnum
Þriðjudaginn 14. Apríl munu nemendur Tónlistarskólans á Akureyri og elstu börnin af leikskólunum Álfaborg, Álfasteini, Hulduheimum, Iðavöllum, Kiðagili, Krógabóli, Lundarseli-Pálmholti, Naustatjörn og Tröllaborgum flytja lög og texta eftir Dr. Gunna. Sérstakur gestur tónleikanna er Hákon Geir Snorrason 13 ára söngvari og gítarleikari. Tónleikarnir verða u.þ.b. hálftími og fara fram í Hamraborg í Menningarhúsinu Hofi.
Klukkan 13.00 koma fram börn frá leikskólunum Álfasteini, Hulduheimum, Iðavöllum, Kiðagili og Naustatjörn .
Klukkan 14.30 koma fram börn frá leikskólunum Álfaborg, Krógaból, Lundarseli-Pálmholt og Tröllaborgum
Tónleikarnir eru hluti af Barnamenningarhátíð.