Til baka

Sound of Silence - Kammerkór Norðurlands

Sound of Silence - Kammerkór Norðurlands

Bandarísk kórtónlist eftir höfunda á borð við Eric Whitacre, Billy Joel, Paul Simon og Morten Lauridsen.

Kammerkór Norðurlands flytur bandaríska kórtónlist eftir höfunda á borð við Eric Whitacre, Billy Joel, Paul Simon og Morten Lauridsen.

Menningarhúsið Hof - 25. mars kl. 16.00 
Miðasala á tix.is og við innganginn, kr. 4.500.
 
Efnisskrá kórsins að þessu sinni er bandarísk kórtónlist og kennir þar ýmissa grasa.
Flutt verða nokkur af glæsilegustu nýrri kórverkum höfuðtónskálda Bandaríkjanna. Einnig eru á efnisskránni þjóðlög, trúarleg lög og þekkt popplög í nýjum og afar metnaðarfullum útsetningum. Meðal lagahöfunda má nefna Paul Simon, Eric Whitacre, Jake Runestad, Billy Joel, Ola Gjeilo, Réne Clausen og Morten Lauridsen.

Stjórnandi Kammerkórs Norðurlands er sem fyrr Guðmundur Óli Gunnarsson en kórfélagar eru flestir tónlistarmenntaðir og/eða atvinnufólk í tónlist og koma víða að af Norðurlandi. Kórinn hefur frá stofnun haft að markmiði að flytja nýja íslenska kórtónlist (raunar með ýmsum öðrum verkefnum) og gefið út þrjá hljómdiska, síðast árið 2020, en þar er að finna ljóð Davíðs Stefánssonar við ný og eldri íslensk lög. En að þessu sinni er stefnan tekin til Bandaríkja Norður-Ameríku.


Verkefnið er styrkt af Tónlistarsjóði.

Hvenær
laugardagur, mars 25
Klukkan
16:00-18:00
Hvar
Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
4500