Til baka

Special effects förðunarnámskeið

Special effects förðunarnámskeið

Smiðja í gerviförðun eða „special effects“ förðun sem endar á morðgátu á Amtsbókasafninu.
Í tilefni barnamenningarhátíðar verður haldin smiðja í gerviförðun eða „special effects“ förðun. Smiðjan verður haldin dagana 26.-29. apríl og endar á morðgátu á Amtsbókasafninu kvöldið 29. apríl (upplýsingar neðar).
 
Smiðjan er ætluð ungmennum á aldrinum 16-18 ára og er aðeins um 10-12 pláss að ræða. Skráning fer fram í gegnum ungmennahus@gmail.com eða instagramið ungmennahusid og þarf að taka fram fullt nafn, kennitölu og netfang þátttakanda.

Í smiðjunni verða teknar fyrir mismunandi gerðir af gerviförðun og hvernig hægt er að nota ólíkan efnivið til að búa til allskonar fylgihluti. Einnig munu þátttakendur búa til eigin karakter og förðun fyrir karakterinn. Síðasta dag smiðjunnar breyta allir sér í sinn karakter og fara saman á Amtsbókasafnið þar sem ungmennin taka þátt í morðgátu.
 
Tímar smiðjunnar eru:
Mánudagurinn 26. apríl kl. 15:30-17:30
Þriðjudagurinn 27. apríl kl. 15:30-17:30
Miðvikudagurinn 28. apríl kl. 15:30-17:30
Fimmtudagurinn 29. apríl 17-20 og svo 20-22(morðgáta)
 
Morðgáta
Í tilefni barnamenningarhátíðar á Akureyri verða Amtsbókasafnið og Ungmennahúsið í Rósenborg með Diskó Morðgátu - Murder Mystery fimmtudagskvöldið 29. apríl fyrir 16-18 ára.
Staðurinn er Disco 54 - árið er 1978, hrekkjavakan er á næsta leyti - viðburðurinn er afmæli hins eina sanna Dr. Discos. Á meðan veislunni stendur er framið MORÐ, sem gestir verða að ráða fram úr og komast að því hver hinn seki er.
Morðgátukvöldið er lokakvöld Special effects förðunarnámskeiðs þar sem búningur kvöldsins verður meðal annars búinn til og þurfa þátttakendur að hafa verið á því námskeiði til þess að taka þátt í morðgátunni.



Verkefnið nýtur stuðnings Akureyrarbæjar og er hluti af Barnamenningarhátíð.

Hvenær
26. - 29. apríl
Hvar
Rósenborg, Skólastígur, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald en skráning nauðsynleg
Nánari upplýsingar

Instagram Ungmennahússins HÉR