Til baka

Spegill þjóðar - fréttamyndir Gunnars V. Andréssonar í 50 ár

Spegill þjóðar - fréttamyndir Gunnars V. Andréssonar í 50 ár

Svipmyndir úr sögu Íslands síðustu 50 árin.
Á sýningunni Spegill þjóðar birtast augnablik úr sögunni sem fréttaljósmyndarinn Gunnar V. Andrésson festi eru á filmu og um leið í þjóðarminnið á 50 ára ferli sínum frá 1966 til 2018. Sjón er sögu ríkari.
Myndirnar eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf, sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á íslensku samfélagi. Það er langur vegur á milli bóndans í Reykjavík að stíga með mjólkurbrúsana sína upp í strætó 1979 og mynda sem gefa innsýn inn í eftirmála efnahagshrunsins 2008.

Gunnar er blaðamaður án orða. Ávallt mættur þar sem eitthvað fréttnæmt var að gerast með frásagnargildi ljósmyndarinnar að leiðarljósi frekar en fagurfræðilegt gildi hennar. En í flestum myndum sínum tekst honum að tvinna þetta tvennt saman.

Sýningin er úrval mynda af sýningu Ljósmyndasafns Reykjavíkur, Samferðamaður. Til viðbótar var bætt við nokkrum myndum frá Akureyri eða sem snerta sérstaklega sögu þessa landshluta.

Minjasafnið á Akureyri er opið daglega frá kl. 13-16.

Aðrar sýningar:

Tónlistarbærinn Akureyri

Akureyri bærinn við Pollinn

Lýðveldisdagurinn 17. júní 1944

Íslenski fáninn og sögulegir fánar.

Hvenær
19. febrúar - 3. maí
Klukkan
13:00-16:00
Hvar
Akureyri Museum, Aðalstræti, Innbærinn, Akureyri, Akureyrarbær, Northeastern Region, 600, Iceland