Til baka

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins

Komdu að spila!

Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins er ætlaður krökkum á aldrinum 9 – 13 ára. Hópurinn hittist kl. 17-18 annan hvern mánudag yfir vetrartímann og spilar borðspil í eigu safnsins. Hópurinn spilar á Orðakaffi, kaffihúsi safnsins.

Í apríl fer spilaklúbburinn fram í tengslum við Barnamenningarhátíð á Akureyri og eru nýjir krakkar hjartanlega velkomnir. Engin þörf er að skrá sig fyrir fram, nóg er að mæta á staðinn.

Hrönn Björgvinsdóttir ungmennabókavörður heldur utan um spilahópinn en í facebook-hóp fyrir foreldra og forráðamenn kemur fram hvaða spil verða spiluð hverju sinni.


Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri.

Hvenær
mánudagur, apríl 26
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Brekkugata 17, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald
Nánari upplýsingar

Nánar um spilaklúbbinn HÉR