Spilaklúbbur Amtsbókasafnsins er ætlaður krökkum á aldrinum 9 – 13 ára. Hópurinn hittist á Orðakaffi kl. 17-18 annan hvern mánudag yfir vetrartímann og spilar borðspil í eigu safnsins. Ekki þarf að skrá sig í klúbbinn, nóg er að mæta á staðinn.
Hrönn Björgvinsdóttir heldur utan um spilahópinn, hægt er að senda fyrirspurnir á hana á netfangið hronnb@amtsbok.is.
Foreldrar og forráðamenn geta fylgst með starfi klúbbsins í sérstökum facebook-hóp.