Til baka

Stebbi og Eyfi

Stebbi og Eyfi

Stebba og Eyfa þarf vart að kynna, en þeir hafa um árabil verið í fremsta flokki höfunda og flytjenda dægurtónlistar á Íslandi. Þeir félagar stíga á stokk á Græna Hattinum um páskana að venju eða nánar tiltekið föstudaginn langa 29. mars. Á þessum tónleikum munu þeir flytja rjómann af því sem þeir hafa fengist við í tónlist undanfarna áratugi, bæði saman og í sitthvoru lagi ásamt því að spjalla á mjög léttum nótum við tónleikagesti.-

Þeir Stebbi og Eyfi eru þekktir fyrir að gera alla jafna allt rétt, en þetta kvöld munu þeir leitast við að gera allt vitlaust!-

Með þeim í för verður að sjálfsögðu píanósnillingurinn Þórir Úlfarsson.-

Jafnframt því að spila og syngja sín þekktustu lög munu þeir félagar, í tilefni páskanna, gefa fjölmörgum tónleikagestum ljúffeng páskaegg frá GÓU, en dregið verður úr seldum aðgöngumiðum.-

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og er forsala aðgöngumiða á graenihatturinn.is-

 

-Miðaverð: Kr. 5.900-

Hvenær
föstudagur, mars 29
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900