Stefnumót við fortíðina
Úti Ljósmyndasýning
Ljósmyndasýning / Photo exhibition
Það er áralöng hefð hjá okkur ÁLFkonum að setja upp nýja ljósmyndsýningu í Lystigarðinum í sumarbyrjun. Fyrir hverja sýningu höfum við ákveðið þema til að vinna eftir. Að þessu sinni var ákveðið að helga sýninguna 100 ára afmæli Ljósmyndarafélags Íslands sem er á þessu ári. Stofnfundurinn var haldin 1926 og mættu til hans 18 ljósmyndarar sem flestir störfuðu í Reykjavík. Það er gaman að geta þess að í þeim hópi voru 3 konur.
Upp kom sú hugmynd að vinna með 100 ára gamlar ljósmyndir frá Akureyri sem varðveittar eru á Minjasafninu. Við unnum hver í sínu lagi og reyndum að finna staðinn sem ljósmyndarinn hafði hugsanlega staðið á þegar hann tók myndina. Þegar staðurinn var fundinn stilltum við okkur upp með myndavélarnar og smelltum af.
Mikið hefur breyst í bænum á 100 árum og var oft á tíðum mjög erfitt að reyna ná góðum myndum þar sem byggingar eða trjágróður skyggðu á allt útsýni. Það kom því skemmtilega á óvart að sjá að þó að mikið hafi breyst þá standa enn uppi hús sem sjá má á þessum gömlu myndum.
ÁLFkonur eru á sínu 16. starfsári og þessi sýning eru sú fimmtánda í Lystigarðinum. Þessar ÁLFkonur eru þátttakendur að þessu sinni:
Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Gunnlaug E. Friðriksdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Margrét Elfa Jónsdóttir.
Við bjóðum ykkur vel að njóta og vonum að þið hafið gaman af því að fara á þetta „Stefnumót við fortíðina” með okkur.
Sýningin stendur fram á vor 2027 og er opin á opnunartíma Lystigarðsins á Akureyri.