Til baka

Stofutónleikar í Davíðshúsi - Guðmundur Pétursson

Stofutónleikar í Davíðshúsi - Guðmundur Pétursson

Guðmundur Pétursson leikur og syngur eigin tónsmíðar í bland við gömul blúslög

Guðmundur Pétursson býður gestum í sinn einstaka tónlistarheim í stofu Davíðshúss. Hann spilar og syngur eigin tónsmíðar í bland við gömul blúslög laugardaginn 7. nóvember kl. 14.

Guðmundur Pétursson er einn fremsti gítarleikari landsins og hefur starfað við tónlist frá unglingsaldri. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur hann leikið með ótal íslenskum og erlendum tónlistarmönnum og tekið þátt í margvíslegum verkefnum, bæði hér heima og víða um heim. Guðmundur verið iðinn við eigin tónlistarsköpun og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin oftar en einu sinni, nú síðast fyrir plötuna Wandering Beings árið 2024.

Síðast þegar Guðmundur hélt tónleika á Akureyri flutti hann eigin Gítarskonsert í Hofi með SinfoniaNord. Í Davíðshúsi verður Guðmundur einn með gítarinn í notalegu umhverfi Davíðshúss.

Tónleikarnir hefjast kl. 14:00 og aðgangur er ókeypis.
Öll hjartanlega velkomin!

Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6
Hvenær: laugardaginn 7. Nóvember
Hvenær: kl. 14:00
Aðgangur ókeypis

Hvenær
laugardagur, nóvember 7
Klukkan
14:00-15:00
Hvar
Davíðshús
Verð
Ókeypis