Til baka

Stórurð / Borgarfjörður eystri

Stórurð / Borgarfjörður eystri

Einstök náttúrufegurð og litadýrð við rætur Dyrfjalla.

Val um göngu í Stórurð eða heimsækja þorpið Bakkagerði og taka styttri göngur þar.

Dagurinn er tekinn snemma, lagt af stað frá Akureyri kl. 06:00. Ekið sem leið liggur austur á Borgarfjörð eystri. Gangan í Stórurð hefst við þjónustuhúsið í Vatnsskarði. Þaðan er gengið á Geldingafjall (um 270 m hækkun) og eftir Geldingaskörðum í Stórurð. Því næst er gengið niður í sjálfa urðina en um hana liggja merktar gönguleiðir. Frá Stórurð munu veður og aðstæður ráða hvort gengið verður til baka um Urðardal, undir Lönguhlíð og niður á bílastæði neðan Vatnsskarðs eða niður til Njarðvíkur.

Þeir sem ekki ganga í Stórurð halda áfram til Borgarfjarðar eystri. Á leiðinni niður í Njarðvík er stoppað við Innra Hvanngil en stutt og auðveld ganga er inn í það. Gilið einkennist af svörtum basalt-berggöngum sem kljúfa líparítskriður þannig að úr verður sérkennilegt samspil ólíkra lita og bergtegunda. Í Njarðvíkurskriðum verður útsýnisstopp við Naddakross. Við komuna til Bakkagerðis verður fyrst farið í Hafnarhólmann en þar er mikil náttúrufegurð, frábær aðstaða til fuglaskoðunar og glæsilegt kaffihús þar sem auk veitinga er boðið upp á listasýningar, ljósmyndasýningar og handverkssölu. Eftir góða viðdvöl í Hafnarhólmanum verður þorpið Bakkagerði heimsótt. Þar geta þátttakendur skoðað sig um á eigin spýtur, m.a. er tilvalið að ganga þægilega leið á sjálfa Álfaborgina.

Á heimleiðinni verður stoppað í um tvær klukkustundir á Egilsstöðum. Þar fá þátttakendur frjálsan tíma til að skoða sig um, fara í sund og/eða á veitingastað. Þeim sem hafa áhuga á að fara í Vök verður skutlað þangað en um er að ræða einstaklega fallegan baðstað við Urriðavatn.

Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 22:30.

Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
06:00-22:30
Hvar
Oddeyrarbót 2
Verð
Frá kr. 18.900