Styrktarmót - Bergið Headspace - Mudslinger Social Club
Fjallahjólamót til styrktar Bergsins Headspace. Leið sem allir geta hjólað!
Mudslinger Social Club ákvað að henda í eitt styrktarmót með skömmum fyrirvara! Hér eru helstu atriði:
- Bergið Headspace fær allan ágóða af mótinu.
- Verð á þátttakanda er kr. 4.000, frítt er fyrir börn 15 ára og yngri.
- Mótið byrjar um klukkan 16 á laugardaginn, eða eftir að Downhill mótinu lýkur í Hlíðarfjalli.
- Leiðin sem verður farin er ný að miklu leyti. Byrjum á sama stað og "Hjalteyrin" byrjar en förum svo í "Humarinn" og "Rækjuna".
- Við endamarkið er boðið upp á léttar veitingar og hörrrku stemningu! Hágæða upphitun fyrir aðra dagskrá á Akureyrarvöku.
Skráning fer fram Facebook síðu viðburðarins, hér til hægri.