3 skór
9. maí, laugardagur
Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23
Safnast saman í bíla ef vill.
Ferð FFA á bæjarfjall Akureyrar. Gengið er eftir merktri og nokkuð auðveldri gönguleið á fjallið. Af Súlum er afar fallegt útsýni. Göngubúnaður miðast við færi og aðstæður.
ATH. að vetri til og snemma vors er ganga á Súlur erfiðari en að sumri til og er hún metin sem 3ja skóa ferð á þessum árstíma. Sama leið farin til baka.
Vegalengd: 11–12 km. Gönguhækkun: 880 m.