Til baka

Súlur Vertical

Súlur Vertical

Fjallahlaupið Súlur Vertical var fyrst haldið árið 2016, boðið er upp á 3 vegalendir 18km, 28km og 55km

Fjallahlaupið Súlur Vertical var fyrst haldið árið 2016 að frumkvæði Þorbergs Inga Jónssonar ofurhlaupara. UFA Eyrarskokk tók síðan við keflinu árið 2017 og hefur haldið hlaupið síðan. Viðburðurinn hefur vaxið ár frá ári og ný og enn meira krefjandi hlaupaleið bæst við.

Sú nýjasta er 55 kílómetra leið með 3.000 metra hækkun sem gefur 3 ITRA punkta. Hlaupið er upp á bæjarfjöllin Súlur og Hlíðarfjall og alla leið niður á Ráshústorgið þar sem hlaupararnir koma í mark með bros á vör. Sjá má leiðina á FB síðu hlaupsins @VerticalSulur

Aðrar vegalengdir eru annars vegar 28 km hlaup þar sem hlaupið er upp á Súlur og hins vega 18 km hlaup sem hentar öllum sem hafa áhuga á utanvegahlaupum jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Viðburður fer fram 30. júlí 2022

Hvenær
laugardagur, júlí 30
Hvar
Ráðhústorg, Akureyri