Sumarsmiðjur 2026 ágúst
Legosmiðja
Amtsbókasafnið á Akureyri bíður krökkum á aldrinum 7- 12 ára að koma á safnið og nýta ímyndunaraflið í allskonar skemmtilegum smiðjum.
Smiðjurnar eru á milli klukkan 9 og 11 og er krökkunum frjálst að koma og fara að vild allt eftir áhuga og úthaldi.
Í smiðju dagsins þann 17. ágúst ætlum við að byggja úr lego kubbum. Veljum okkur bók og byggjum upp úr henni til dæmis atriði úr bókinni, persónur eða eitthvað annað sem ykkur dettur í hug.
Smiðjurnar verða sem hér segir:
10. ágúst – Spilamorgun – spilum saman skemmtilegu borðspilin sem bókasafnið á til útláns.
11. ágúst – Steina/krukku málun – Litum saman á krukkur og steina með posca pennum.
12. ágúst – Barmmerki og bókamerki – Búum til barmmerki og bókamerki úr gömlum bókum.
17. ágúst – Lego -Byggjum úr lego kubbum. Krakkarnir eru hvattir til þess að velja sér bók og byggja eitthvað upp úr bókinni. Geta verið atriði úr bókinni, persónur eða eitthvað annað sem þeim dettur í hug.
18. ágúst – Perlusmiðja - Perlum persónur úr barnabókum. Við munum svo strauja öll listaverkin og krakkarnir mega taka þau með sér heim.
19. ágúst – Búðu til þína eigin bók - Krökkunum gefst kostur á að búa til sína eigin sögu og myndskreyta hana. Þeir sem vilja geta síðan gefið safninu bókina sína til útláns.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.
Sumarsmiðjurnar eru styrktar af barnamenningarsjóði Íslands.